Sannleikurinn er sá að fyrir stutta ljúfa helgarferð þarf ekkert að fylla 23 kílóa tösku af drasli. Ef þú getur hugsað þér að leggja í víking með alls ekkert meðferðis er hægt að gera æði ágæt kaup á ákveðnum ferðum Wow Air.
Á vef flugfélagsins þessa stundina má finna töluverðan fjölda flugferða aðra leið út niður í 7.900 krónur á mann. Jafnvel þó að raunin sé oftast sú að bakaleiðin kostar meira er sannarlega tækifæri til að skreppa út kringum 20 þúsund krónur eða svo báðar leiðir.
Það til borga á borð við Amsterdam í Hollandi í janúar, febrúar og mars. Okkar heittelskaða Kaupmannahöfn á sama verðinu næstu fjóra mánuði og til London kostar 7.900 líka frá janúar og alveg fram í maí. Sömuleiðis Bristol í maí. Þú getur meira að segja stigið niður fæti í Stokkhólmi í maí og júní fyrir þennan pening.
Rúsínan í pylsuendanum er svo okkar margrómaða hótelbókunarvél sem finnur handa ykkur töluvert lægra verð á gistingu en aðrir bjóða. Skyndileit í nokkrum þeim borgum sem eru á tilboðsverði hjá Wow leiðir þetta í ljós:
Varla þarf að taka fram að hótelbókunarvél Wow Air kemst ekki á blað í neinum tilfellum hér svo þú ert að henda peningum á glæ ef þú bókar gistingu þar með fluginu.
Góða ferð 🙂












