Það er ekki lítill ágóði af því fyrir hótel- og gistihúsaeigendur í heiminum að komast hátt á blað á vefmiðlinum Tripadvisor. Slíkt getur beinlínis skilið milli feigs og ófeigs í þeim bransa. Svindlarar sjá þar æði gott tækifæri til að maka krókinn.

Gegn vægu gjaldi er sagt auðvelt að hjálpa gistihúsaeigendum að bæta einkunnargjöf sína á vefmiðlum. Skjáskot
Fyrir skömmu sendi vefrisinn frá sér tilkynningu þar sem ítrekað er að svindl hvers kyns verði ekki liðið og sannist slíkt verði afleiðingar harðar.
Slíkar tilkynningar eru orðnar nokkuð algengar hjá Tripadvisor sökum þess að það er talsverður bisness að bjóða og selja „góðar einkunnir“ eða beinlínis koma óorði á samkeppnisaðila. Fjölmargir vafasamir aðilar bjóða slíka þjónustu á netinu og kalla sig velflestir optimisation sites. Þeir miðlar bjóða, gegn gjaldi, að hafa áhrif á einkunnir hótel og gistihúsa á Tripadvisor. Sum þeirra þykjast líka vera í samstarfi við vefrisann sjálfan.
Greinilegt er að eftirspurn er eftir þessari þjónustu því í tilkynningu Tripadvisor segir: „Það er algengt að þeir aðilar sem greiða fyrir slíka þjónustu lenda svo í vandræðum þegar þeir vilja hætta. Fjárkúgun algeng og hótanir hvers kyns fylgja í kjölfarið.“
Fararheill hefur löngum bent fólki á að hafa svolítið varann á sér varðandi einkunnir gististaða á Tripadvisor. Það hefur lengi verið heldur auðvelt að svindla á kerfinu og málaferli vegna slíks átt sér stað. Taka hlutum með salti hér eins og annars staðar.







