Getur verið að næsta kynslóð eða sú þarnæsta þurfi alls ekki að sætta sig við að mæta með þriggja stunda fyrirvara á næsta flugvöll, bíða þar í röðum lon og don, fá svo fokdýra þjónustu um borð í millilandavélum og jafnvel enda túrinn á að fá ekki farangurinn í hendurnar?
Ýmislegt bendir til að það gæti jafnvel orðið raunin ef fram heldur sem horfir. Það er jú ekkert sem heldur aftur af gríðarlegum tækniframförum. Tækni sem í framtíðinni gæti gert okkur kleift að fljúga langar leiðir án þess að bóka eitt né neitt eins og má sjá á þessu stórkostlega myndbandi 🙂







