Efalítið eru margir þarna úti með hið fyrrum forboðna land Myanmar hátt á lista yfir lönd sem heimsækja þarf áður en þetta líf tekur enda. Nú er kannski tækifæri sem aldrei fyrr.

Kannski fallegasta land Asíu. Útsýni frá Mandalay hæð. Mynd bucketlistly

Kannski fallegasta land Asíu. Útsýni frá Mandalay hæð. Mynd bucketlistly

Ferðamiðillinn Travelbird í Noregi er þessa stundina að bjóða afar glæsilegan túr til Myanmar, áður Búrma, þar sem víða er komið við á tveggja vikna ferðalagi um landið í maí á næsta ári. Borgir á borð við Mandalay, Bagan eða Yangon hljóma kannski framandi í dag en nú þegar landið hefur opnast að fullu fyrir túrisma verða þessi nöfn fljótlega jafn þekkt og Pattaya eða Hua Hin í nágrannaríkinu Tælandi.

Lítið er verra fyrir áhugasama að verðmiðinn á túr þessum er æði gott eða 303 þúsund krónur á mann miðað við tvo saman. Það miðast við brottför frá Osló og þangað komumst við ódýrt allan ársins hring. Þegar þetta er skrifað finnst flug fram og aftur til Osló í maí niður í átján þúsund krónur með einni tösku meðferðis hjá Norwegian. Túrinn til Myanmar þarf því ekki að kosta í heildina meira en 650 þúsund krónur fyrir tvo saman sem er fínt verð.

Þó hið norska Travelbird sé ekki hugsað fyrir Íslendinga er Fararheill kunnugt um að gengið hefur smurt að bóka ferðir gegnum fyrirtækið héðan. Í þeim tilfellum sem það gengur ekki er líka hægt að hringja í þjónustuver og græja ferð þannig. Þetta er bara bisness og fá fyrirtæki hafna bisness. Í versta falli hægt að fá „lánað“ heimilisfang hjá vinum eða ættingjum í Noregi til að klára bókun. Ef allt um þrýtur en ævintýramennskan er yfirdrifin er líka hægt að nota heimilisfang sendiráðs Íslands í Noregi. Sendiráð eru jú til að greiða götu okkar Íslendinga 🙂

Allt um túrinn hér.