Full ástæða til að óska Wow Air til hamingju með daginn en í dag hófst sala ferða flugfélagsins til Montreal og Toronto sem eru fyrstu áfangastaðir þess í Kanada. Lág fargjöld vöktu það mikla lukku að vefur Wow Air féll niður um tíma.

Wow Air til Kanada í maí á næsta ári. Skjáskot

Wow Air til Kanada í maí á næsta ári. Skjáskot

Reglubundnar ferðir hefjast í maí á næsta ári til bæði Toronto og Montreal og það sem meira er, í beinni samkeppni við Icelandair sem þjónustar báðar borgir líka í beinu flugi. Það er því ekki um meira úrval áfangastaða að ræða en fargjöldin hins vegar lækka töluvert.

Það á þó aðeins við ef fólk ferðast létt með Wow Air. Lægsta verð aðra leiðina til beggja borga er 15.998 krónur frá Keflavík. Þar ekkert innifalið meðan allir farþegar Icelandair fá tvær 23 kílóa töskur með í pakkanum.

Okkur lék því forvitni á að vita hver staðan væri ef fólk hefur áhuga að fljúga með Wow Air og taka tvær töskur meðferðis. Taflan hér að neðan sýnir hver útkoman úr því yrði. Tilboðsfargjöld Wow Air, 15.998 krónur, rétt duga til að vera fimm þúsund krónum undir lægsta verði hjá Icelandair ef tvær töskur fljóta með í pakkann. Það útskýrir til dæmis júlí þar sem fargjöld Wow Air fram og aftur með tvær 20 kílóa töskur eru orðin hærri en hjá Icelandair.

Hér ágætt að hafa í huga að Icelandair er ekki að bjóða nein sérfargjöld þessa leiðina næsta sumarið. Það hefur fyrirtækið þó gert annars lagið með hraðtilboðum sínum og þá fæst flug fram og aftur til Toronto kringum 50 þúsund krónur eða svo.

Það má því segja að flugtilboð Wow Air sé flott ef þú lætur handfarangur duga. Ella er fólk fljótt komið upp í svipað verð og Icelandair býður.

* Úttekt gerð kl. 18:15 samtímis hjá báðum aðilum. Lægsta verð í boði fram og aftur í hverjum mánuði plús tvær töskur í ofanálag hjá Wow Air.