Þá er það opinbert. Fleiri ferðamenn létu lífið við notkun lyftistanga á síðasta ári en eftir hákarlaárás.

Lyftistöngin er vinsæl víða og verður allnokkrum að aldurtila líka.
Frá þessu greinir vefmiðillinn Science Alert sem segir frá japönskum karlmanni sem lést þegar hann féll aftur fyrir sig í Taj Mahal á Indlandi við upptöku af sjálfum sér með lyftistöng.
Sá japanski varð þar með fórnarlamb númer tólf á síðasta ári hvers dauða má rekja til lyftistanga, þýðing Fararheill á selfie-stöng. Til samanburðar létust átta manns eftir hákarlaárásir 2019.
Burtséð frá dauðsföllunum þá eru fyrrnefndar lyftistangir eitthvað það vitlausasta sem fundið hefur verið upp. Slíkt kemur nánast alfarið í veg fyrir að fólk þurfi að eiga nokkur einustu samskipti við ókunnuga á ferðalögum. Eins og það er nú erfitt að biðja næsta mann á næsta torgi að smella af einni mynd eða svo. Sem svo kannski er byrjunin á góðu vinasambandi.
Nei, best að halda öllum samskiptum við ókunnuga í lágmarki. Þannig ferðalög eru nefninlega svo gefandi og eftirminnileg. Ekki!







