Óljóst er hvort landinn er meðvitaður um að þrátt fyrir að þotueldsneyti hafi lækkað um meira en helming, úr rúmlega 140$ per tunnu sumarið 2011, niður í rétt rúma 60$ per tunnu í dag er ennþá feitt og mikið aukalegt eldsneytisgjald á öllum ferðum Icelandair.

Lægsta fargjald aðra leið til þessara staða. En mun lengra er til Toronto. Samsett mynd
Með öðrum orðum, þá greiða allir þeir sem ferðast með Icelandair aukalega um sextán þúsund krónur sé flogið út og heim til Evrópu vegna eldsneytisgjaldsins. Gjald sem er enn hærra vestur um haf. Fargjöld flugfélagsins væru mikið mun lægri ef það kæmi ekki til.
Fyrirtækið hefur einu sinni lækkað gjaldið lítillega, um 15%, en sýnir engin merki þess að lækka það frekar þó eldsneytisverð sé í mestu lægð sem verið hefur um margra ára skeið. Að hluta til var það skiljanlegt fyrstu mánuðina enda flugfélagið með samninga um fast verð á eldsneyti en það er ekki afsökun lengur. Nú fer eldsneytisgjaldið án alls efa þráðbeint í vasa hluthafa flugfélagsins.
Ástæða þess að við vekjum máls á þessu nú er sú að farþegar flugfélagsins til Montreal geta keypt flug aðra leið þangað fyrir 28.700 krónur sem er lægsta auglýsta verð á vef Icelandair. Gallinn sá að farþegar flugfélagsins til Toronto geta líka keypt flug aðra leið niður í 28.700 krónur.
Hvað er vandamálið? Kannski það helst að Toronto eru tæplega 500 kílómetrum lengra í burtu en Montreal. Við gerum ráð fyrir að eldsneytiskostnaður til Toronto sé meiri sem því nemur. Hvers vegna þá sama verð? Ættu farþegar til Montreal ekki að njóta þess að flugleiðin er mun styttri eða farþegar til Toronto að greiða meira því lengra er farið?
Hvernig væri nú að starfsmenn Neytendastofu rífi sig nú upp úr stólunum einu sinni og kanni hverju þetta sætir? Vissulega hefur einkafyrirtæki rétt til að ákvarða allt er varðar gjöld sín en neytendur eiga líka rétt á gegnsæi í verðlagningu fyrirtækja. Ella vitum við aldrei hvenær verið er að svindla á okkur.







