Einhver mestu árlegu útgjöld flestra íslenskra fjölskyldna er fjölskyldutúr á sendnar sólarstrendur úti í heimi á sumrin. Það skýtur því skökku við að þegar á bjátar og ferðir standast ekki væntingar og fjarri því að söluaðilum finnist fátt um og bjóði smásmugulegan afslátt á næstu ferð.

Fríður hópur fólks í þjónustuveri Nazar sem tekur vel á móti öllum. Nema þú sért að kvarta. Þá máttu eiga þig. Skjáskot

Fríður hópur fólks í þjónustuveri Nazar sem tekur vel á móti öllum. Nema þú sért að kvarta. Þá máttu eiga þig.
Skjáskot

Ferðaskrifstofan Nazar er sek um að koma illa fram við minnst eina fjölskyldu. Sú lenti illa í því á Pegasos World hótelinu í Tyrklandi í ferð á vegum Nazar. Þjónusta á hóteli ekki samkvæmt loforðum, herbergi vægast sagt skítugt og talsvert skorti á að aukaþjónusta sem keypt var stæðist vonir eins og lesa má um hér að neðan.

Kæra Nazar Ísland.
Við verðum að segja að þið hafið valdið okkur miklum vonbrigðum. Ykkur er sjálfsagt alveg saman því við erum bara einhver sem skiptir ykkur ekki nokkru máli.

En fríið okkar fjölskyldunnar sem búið var að hafa mikið fyrir var langt frá því að standa undir væntingum og að ykkar sögn þykir ykkur það miður og bjóðið okkur 10.000 kr afslátt á næstu ferð með ykkur, og ekki einu sinni per mann!! Ferðin kostaði 786.146 kr.

Þið seljið okkur eðal Bens jeppa sem við borgum fyrir en fáum Lödu (ekki einu sinni sport).
Delux fjölskyldu svíta með svölum, myndir á netinu og lýsingar alveg glimrandi og jók á tilhlökkum okkar. En maður minn! Það var þá delux svíta, viðbjóðsleg teppi á gólfinu með rakablettum, sírennsli í klósettinu, úr sér gengnum rúmum og svefnstóllinn sem þriðja “barnið” fékk var ja hvað skal segja “algjört hró”. Svalirnar slíkar að þig langaði ekki út á þær með plaststólum og borðræfli sem munað hafa fífil sinn fegurri og vísuðu út á hús sem hafði að geyma ljósavélina sem fór reglulega í gang þegar rafmagnið fór af hótelinu sem var nokkuð algengt.

Jæja til að auka á þægindi okkar í þessu himneska fríi ákváðum við að kaupa okkur comfort class pakkann, tæpar 100 þús á fjölskylduna en jæja við ætluðum að gera vel við okkur enda fermingargjöf dótturinnar og útskriftargjafir drengjanna. VIP innskráning hljómaði vel eftir langt flug, sem var langt frá því að vera með góðu flugfélagi, hvað þá flugfreyjum en það er nú önnur saga. En VIP? Það var ekki einu sinni kveikt á VIP innskráningarbásnum þegar við komum en jú það kom starfsmaður sem fylgdi okkur á herbergið og við máttum tala við hana ef eitthvað væri. Ekki leið á löngu þar til við töluðum við hana því áfyllti mínibarinn sem var í comfort class pakkanum var tómur og tók tvo daga að fylla á. Jæja mikið væri nú gott að leggjast á sólbekkina sem eru fráteknir fyrir okkur á ströndinni, jú jú líka inni í comfort class pakkanum. Nei þeir voru allir uppteknir og við létum vita og reyndum aftur og aftur en jú við fengum bekki seinni partinn þegar fólk fór að græja sig í kvöldmat. Jú það var notalegt að leggjast á þá en fyrir hvað vorum við að borga tæpar 100 þúsund aukalega? Morgunverðir 3 x og kvöldverður 1 x á betri veitingastöðum, trúið okkur hin venjulegi matsalur var mun betri og ekki þess virði að prófa hina staðina. Jú nýkreistur appelsínusafi var inn í pakkanum, við fengum hann einn morgun, vorum ýmist of snemma eða ekki á réttum tíma þegar við fórum í morgunmat þó að löngu væri búið að opna veitingasalinn. Frítt wi-fi var í pakkanum, með þrjú ungmenni hljómaði það mjög vel. Það er hins vegar svo lélegt að ekki var þess virði að eyða peningum í það, einfaldara að fara í lobbýið þar sem frítt wi-fi er og mun betra.

Við erum enn að gera það upp við okkur hvort tveir baðsloppar hafi verið þess virði að kaupa comfort class pakkann…….. fórum ekki í sloppana vegna hita en jú inniskórnir þessi tvenn pör björguðu okkur frá því að þurfa að koma við teppið sem var þannig að þig langaði alls og þá meina ég alls ekki til að koma við það. Því mikið var að kvikindum sem bitu okkur fjölskylduna hressilega og einhver komu með okkur heim í töskunum okkar og kostuðu okkur mikil þrif og fyrirhöfn að losna við.

Því segjum við við ykkur sem eruð að spá í að fara til Tyrklands með Nazar og á Pegasos World…….hugsið málið vandlega því ekki er allt sem sýnist á heimasíðunni og illa brugðist við kvörtunum.. Það tók Nazar 4 og hálfa viku að komast að því að þeim þykir eins og fyrr segir miður að fríið stóðst ekki væntingar og bjóða okkur 10 þús. kr. í afslátt á næstu ferð fyrir 5 manna fjölskyldu! Alla vega í Guðana bænum kaupið ykkur frekar eitthvað fallegt fyrir 100 þúsund í stað þess að kaupa Comfort Class pakkann og gangið úr skugga um að ekki séu teppi á herbergjunum ykkar og svo í lokin þá veit ég af fólki, hjónum með eitt barn sem voru í alveg eins herbergi og við, nema það var nýuppgert með parketi og fínum innréttingum og þau höfðu borgað fyrir lítið herbergi en við fyrir Delux fjölskyldu svítu.

Við óskuðum eftir því að fá Comfort class pakkann endurgreiddan eftir 10 þús kr. boðið ykkar en þið hafið ekki einu sinni svarað pósti okkar, enda skiptum við ykkur ekki neinu máli en við hefðum viljað vera með þessar upplýsingar þegar við fjölskyldan vorum að ákveða sumarfríið okkar.

Með kveðju

Nazar er ekki eina innlenda ferðaskrifstofan sem tekur illa í kröfur viðskiptavina sem telja sig ekki fá það sem greitt hafi verið fyrir. Tíu til fimmtán þúsund króna afsláttur er algeng viðbrögð sem sýna kannski best hversu aftarlega á merinni ferðaskrifstofurnar eru. Þetta er ekki peningur í vasann eða inn á reikning. Þetta er undantekningarlaust „afsláttur“ af næstu ferð.

Næstu ferð!!! Af hverju ætti fólk sem er bullandi óánægt með eina ferð hjá ferðaskrifstofu að vilja ferðast aftur með sömu aðilum? Fyrir utan að tíu þúsund króna afsláttur á fjölskylduferð sem skjagar hátt í milljón krónur er nánast lítilsvirðing. Lágmark að bjóða tíu þúsund á mann hið minnsta og best væri að gera þetta af heilum hug og bjóða fjölskyldum/einstaklingum sem eru virkilega ósátt og færa góð rök fyrir aðra ferð þeim að kostnaðarlausu.

Svo þarf engar vikur eða mánuði til að fá svör við kvörtunum? Fólk er drullufúlt með ferð og til að bæta smá salti í sárin tekur ferðaskrifstofan sér margar vikur til að svara einu skeyti! Sérstaklega þar sem það eru tíu einstaklingar að starfa í „þjónustuverinu“ eins og sjá má á meðfylgjandi skjáskoti.

Stór mínus í kladda Nazar.