Flugfélagið Wow Air stendur vel undir nafni sem lággjaldaflugfélag gagnvart Icelandair sé tekið mið af kostnaði við ferðir vestur um haf til Boston fram til áramóta. Úttekt Fararheill sýnir að Wow Air býður þar töluvert betri díl.

Hagstæðast með Wow Air til Boston í haust og vetur

Hagstæðast með Wow Air til Boston í haust og vetur

Nú fer að líða að uppkaupstíma fyrir landann í Boston en verslunarferðir þangað eru sívinsælar og virðist ekkert lát þar á. En allur sparnaður af verslun þar í borg getur auðveldlega fallið dauður niður ef flugfarið sjálft kostar formúgu.

Wow Air kemur þér aðra leið til Boston í næsta mánuði fyrir rúmar 37 þúsund krónur með einni tösku en það er 35% lægra verð en lægsta verð aðra leiðina þann mánuðinn með Icelandair.

Verðmismunur í október, nóvember og desember er sýnu minni eins og sést á meðfylgjandi töflu. Wow Air býður þó alltaf betur og hér skal hafa í huga að um aðra leið er að ræða. Fimm þúsund króna verðmunurinn getur því verið um tíu þúsund alls báðar leiðir.

* Úttekt gerð kl. 10:10 þann 20. ágúst 2015 hjá báðum flugfélögum samtímis. Einni tösku bætt við fargjöld Wow Air. Lægsta verð í hverjum mánuði fram til áramóta. Hafa skal hugfast að verðbreytingar eru örar hjá flugfélögunum.