Það er eitt að bjóða lægsta verð á flugi þegar ekkert er meðferðis en það er dapurt í meira lagi að sjálfskipað lággjaldaflugfélagið Wow Air skuli vera dýrara en Icelandair þegar ein taska er gripin með á leið til Kaupmannahafnar.

Aðeins lægsta verð með Wow ef engin er taskan. Annars dýrara í haust og vetur

Aðeins lægsta verð með Wow ef engin er taskan. Annars dýrara í haust og vetur

Það er raunin samkvæmt nýrri úttekt Fararheill á lægstu fargjöldum með þessum tveimur flugfélögum til Köben í haust og vetur eins og sjá má nánar á meðfylgjandi töflu.

Í öllum tilvikum finnst lægsta verð á flugi hjá Wow Air en aðeins ef enginn farangur annar en fimm kílóa handfarangur er með í för. Þurfi einhver að versla í dönsku höfuðborginni, fara með gjafir til vina í Danmörku eða bara föt til skiptanna í lengri ferð þá er Icelandair að bjóða lægra verð þrjá mánuði af fjórum.

Þetta er bagaleg útkoma fyrir flugfélag sem kallar sig lággjaldaflugfélag. Nema nafnbótin eigi aðeins við þegar fólk ferðast allslaust.

Að því sögðu er þó ekki tómur mínus við flug með Wow Air. Vélar þeirra eru mun nýrri en vélar Icelandair og eyða mun minna eldsneyti á leiðinni. Það er gott fyrir veröldina okkar en súrt samt að það skilar sér ekki til viðskiptavina í enn lægri flugfargjöldum. Á hinn bóginn er ekkert afþreyingarkerfi eða netaðgengi hjá Wow Air meðan slíkt er í boði hjá hinu íslenska flugfélaginu.

* Úttekt gerð kl. 18.15 þann 13. ágúst 2015 á báðum stöðum samtímis. Einni tösku bætt við hjá Wow Air en hafa skal í huga að Icelandair leyfir 23 kílóa tösku en lággjaldaflugfélagið aðeins 20 kíló. Það skiptir máli ef útsölur eru í gangi í Köben 🙂