Enn einu sinni reynist „lággjaldaflugfélagið“ Wow Air vera hágjaldaflugfélag þegar verð þess eru borin saman við verð annarra samkeppnisaðila.

Ódýrara til Billund með Wow ef þú pakkar ekki hreinum nærum. Annars ekki.

Ódýrara til Billund með Wow ef þú pakkar ekki hreinum nærum. Annars ekki.

Að þessu sinni er hið fornfræga Icelandair að bjóða hagstæðari fargjöld aðra leiðina til Billund í Danmörku sé þörf á einni tösku með. En Wow Air er reyndar með lægra fargjald ef þú ætlar að nota sömu nærurnar alla ferðina.

Þetta kemur í ljós við úttekt Fararheill á fargjöldum aðra leiðina frá Keflavík til danska bæjarins í ágúst. Fyrirvarinn nokkuð stuttur en engu að síður eru vafalaust margir þarna úti sem helst bóka með stuttum fyrirvara.

Wow Air flýgur reyndar aðeins til Billund út ágúst og pakkar svo saman meðan Icelandair flýgur þangað í vetur líka. Á vef Icelandair finnst þó fargjald með 20 kílóa tösku niður í 18.355 krónur meðan lægsta fargjald Wow Air án farangurs kostar 14.999 krónur. Hendi fólk einni tösku með í flug Wow Air kostar önnur leiðin 19.997 krónur eða rúmlega 1500 krónum dýrara fargjald en með Icelandair.

* Úttekt gerð kl. 17:45 hjá báðum flugfélögum samtímis. Einni tösku bætt við hjá Wow Air.