Þó ekki sé hægt að saka flugleitarvefinn Dohop um að veita hundrað prósent þjónustu þá er það staðreynd að vefurinn sá var valinn besti flugleitarvefur heims á World Travel Awards hátíðinni í vetur. Slíkt ætti að vera spark í rass um að gera enn betur en eitthvað virðist vanta á það.dohopflug

Dohop hefur verið að birta auglýsingar á vefmiðlum undanfarnar vikur og daga þar sem því er einmitt komið á framfæri að Dohop sé nú númer eitt í flugleit.

Ekkert að því að koma þjónustu sinni á framfæri en kannski væri ráð að kunna stafsetningu. Eins og sést á meðfylgjandi skjáskoti þar sem Dohop óskar Íslendingum til hamingju með að eiga heimsins bestu flugleitarvél vantar aðeins upp á tíu í einkunn fyrir stafsetninguna.

Þessu tengt ættu ferðaþyrstir að vita að þó Dohop sé besti flugleitarvefurinn þá er það hótelbókunarvefur Fararheill sem fékk gullverðlaunin annað árið í röð fyrir að vera heimsins besti hótelleitarvefur. Engin stafsetningarvilla þar heldur bara lágmarksverð á allri gistingu.