Yfirleitt er jákvætt að bera höfuð og herðar yfir aðra. Nema kannski þegar kemur að verðkönnunum. Þar rís Icelandair hærra en nokkur annar í langflestum tilvikum sé mið tekið af verðkönnun Dohop.

Ný verðkönnun Dohop komin út.

Ný verðkönnun Dohop komin út.

Fararheill hefur síðustu misseri bent ferðaþyrstum á að Icelandair sé hreint ekki að bjóða best í flugi til og frá landinu. Þvert á móti er flugfélagið að selja flugsætin á yfirverði miðað við samkeppnisaðila.

Þetta staðfestir júlíkönnun Dohop sem birt var í dag. Fyrirsögn á þeirri frétt sú að verð á flugi heilt yfir í júlí væri 5% lægra en fyrir ári síðan. Að verðbreytingar upp á fimm prósent verði á vöru milli ára er alls engin frétt og sennilega leitun að vöru eða þjónustu sem ekki hefur hækkað eða lækkað um fimm prósent eða meira síðustu tólf mánuði.

Aðalfréttin að okkar mati er að Icelandair reynist vera dýrasta flugfélagið að meðaltali í níu tilvikum af ellefu alls í könnun Dohop. Á sumum flugleiðum eins og til New York eða Boston er Icelandair langtum dýrara en samkeppnisaðilar. Það staðfestir það sem Fararheill hefur bent lesendum sínum á að undanförnu.

Undarlegt nokk er Icelandair þó ekki að toppa verðlistann í öllum tilvikum. Langi einhvern til Kaupmannahafnar eða Osló reynist Icelandair bjóða betur en aðrir í júlímánuði. Vegir Icelandair órannsakanlegir sem fyrr. Að hluta kann hærra verð á mörgum leiðum að skýrast af því að Icelandair býður farþegum sínum að taka meiri farangur en önnur flugfélög.

Wow Air kemur heldur ekki sem best út þrátt fyrir digurbarkalegar auglýsingar þeirra. Mun dýrara er með Wow Air til Alicante þennan mánuðinn en með Primera Air og fátt er hægt að kalla „lággjalda“ við tæplega 70 þúsund króna fargjald til Parísar og Amsterdam.

Sem fyrr verður að taka verðkönnunum Dohop með ögn af salti. Dohop miðar könnun sína ábyggilega við það verð á flugi sem finnst á þeirra eigin vef og Fararheill hefur sýnt fram á að þar er ekki alltaf lægsta verð að finnast né heldur öll þau flugfélög sem fljúga til og frá landinu.

o9