Við erum farin að hafa verulegar áhyggjur af Wow Air. Kannski kappið hafi verið full mikið án forsjár. Í það minnsta fer kvörtunum farþega og viðskiptavina á samfélagsmiðlum mjög fjölgandi.

Glaðar vélar en innanborðs eru menn ekki alveg jafn brosmildir. Mynd Wow Air
Það er ekki laust við að það sé örlítill Iceland Express fnykur af Wow Air þessa dagana. Sem kannski á ekki að koma á óvart enda gamalreyndur forstjóri Iceland Express í stjórnarklefa Wow Air.
Flugfélagið hefur vaxið afar hratt á skömmum tíma eins og landsmenn vita og rekur nú fjórar til fimm vélar sem fljúga til hvorki fleiri né færri en 20 áfangastaða. Hraður vöxtur minnir aðeins á Iceland Express sem breiddi fljótt út vængi sína og var farið að fljúga til ólíklegustu staða á skömmum tíma. Winnipeg einhver? Sem svo endaði með ósköpum enda eigandinn laus við mikla hæfileika í rekstri.
Mörgum þykir þyrnir í augum hvað allt aukadótið kostar þegar flogið er með Wow Air eða reyndar velflestum lággjaldaflugfélögum heims, og þar er Wow nokkuð á pari við aðra hvað aukagjöld varðar með stöku undantekningum. En það er líka ástæða þess að félagið getur boðið fargjöld niður í tíu til fimmtán þúsund aðra leið út í heim að jafnaði og einstöku sinnum á enn lægra verði en það.
En einu gildir hvort um lággjaldaflugfélag eða hefðbundið flugfélag er um að ræða, þjónusta verður að vera til staðar og það góð. Og þar liggur dauður hundur grafinn hjá Wow Air.
Enginn er til svara hjá Wow Air um helgar ef eitthvað kemur upp á og farþegar eða viðskiptavinir þurfa nauðsynlega aðstoð eða hjálp frá manneskju. Sorrí Stína. Þú verður að bíða mánudags, eða eins og sumum viðskiptavinum félagsins vestanhafs býðst, að tala við þjónustufulltrúa í Indlandi.
Fyrir sirka einu ári síðan var hending að finna neikvæðar umsagnir um Wow Air á samfélagsmiðlum eða í öðrum miðlum og við skýrðum frá því að félagið hefði fengið fljúgandi start á einkunnavefum. En það virðist liðin tíð eins og dæmin hér að neðan sýna. Neikvæðar umsagnir eru orðnar jafn margar ef ekki fleiri en þær jákvæðu:






Góðu heilli getum við þó huggað okkur við að láta hótel ekki okra á okkur með bókunarvél okkar hér að neðan. Einu sinni prófað, þú getur ekki hætt 🙂







