Flugfélagið Icelandair hangir enn í sæti númer 81 af hundrað bestu flugfélögum heims samkvæmt nýjum lista Skytrax. Það er sama sæti og fyrir ári og töluvert lakari árangur en hjá helstu samkeppnisaðilum sem hingað fljúga.

Eins og við mátti búast batnar þjónusta Icelandair lítið milli ára. Mynd Woodys Aeroimages
Wow Air kemst ekki á topplista Skytrax hverju sem um má kenna en mörg helstu lággjaldaflugfélög heims skora hátt á listanum. Air Asia er í 25. sæti og Norwegian í því 33. meðan easyJet mælist 39. besta flugfélagið. Wow Air til sárabóta má þó nefna að eitt allra vinsælasta lággjaldaflugfélag heims, Ryanair, kemst heldur ekki á topp 100.
Qatar Airways, Singapore Airways og Cathay Pacific skipa sér í toppsætin þrjú og breytist röð þeirra lítið ára á milli.
Listi Skytrax er að því leytinu frábrugðinn öðrum slíkum listum að hér eru það farþegar og notendur þjónustunnar sem gefa einkunnirnar sem ákvarða topplistann. Þetta er því eins óháð úttekt og framast er unnt og þó mörg flugfélög hafi gefið þessu lítinn gaum fyrir fáum árum er listi Skytrax nú almennt orðinn viðurkenndur sem traustur og áreiðanlegur.







