Flugfélagið Wow Air fagnar þriggja ára afmæli um þessar mundir og hefur af því tilefni hent nokkrum ferðum á sértilboð.

Ammlitilboð hjá Wow.Mynd Wow Air
Þar er ýmislegt góðgæti í boði. Til dæmis sjö þúsund króna lækkun á flugi aðra leið til Tenerife á völdum dagsetningum í haust. Sömuleiðis sjö þúsund króna afsláttur á völdum ferðum til Amsterdam á sama tímabili. Washington í Bandaríkjunum niður í 14.999 í september svo ekki sé minnst á Billund, Köben, London og Dublin niður í 7.999 aðra leiðina á tilteknum dagsetningum.
Ágæt tilboð og fínt að hafa þetta í huga ef haust- eða vetrarferð er á óskalistanum nú eða til að nota sem stökkpall lengra út í heim með öðrum flugfélögum.
Um að gera að kynna sér afmælistilboðin áður en þau klárast hér. Svo halda rakleitt á hótelvef okkar ef þú vilt gistingu án þess að greiða of mikið fyrir.







