Hingað til hefur að mestu leyti þurft að leggja út vel yfir hundrað þúsund krónur fyrir flug fram og aftur frá Evrópu til Suður Ameríku með stöku undantekningum. Af og til þó finnast þó öllu betri sértilboð á flugi en það. Eins og nú.

Það eru ekki mjög margar borgir betur í sveit settar en Ríó de Janeiro. Mynd John Skodak

Það eru ekki mjög margar borgir betur í sveit settar en Ríó de Janeiro. Mynd John Skodak

Allir þeir sem telja flugleitarvefinn Dohop.com vera fremstan jafningja geta fundið flug fram og aftur milli Englands og Ríó de Janeiro í Brasilíu niður í þetta 88 til 89 þúsund krónur næsta haust og fram á næsta vetur. Þeir hinir sömu gjalda fyrir aðdáun sína því önnur flugleitarvél, Fly.com, er þessa stundina að bjóða flug til Ríó og frá í allt haust og fram á vetur fyrir svo lítið sem 74 þúsund krónur á mann.

Það er fantagott verð á löngu flugi til dásamlegs áfangastaðar og sannarlega þess virði að fjölskyldan haldi eldhúsfund ef draumurinn er að heimsækja þetta fagra land á annað borð. Líkurnar eru nefninlega ekki mjög miklar að svo lágt flugtilboð bjóðist neitt mikið á næstunni.

Ekki er úr lagi að benda á að að hótelbókunarvef Fararheill hér að neðan má finna fína þriggja til fjögurra stjörnu gistingu í Ríó niður í sex þúsund krónur.

Meira hér.