Áhyggjubólur eru farnar að myndast á andlitum stöku einstaklinga sem eiga bókað flug til Íslands eða frá á næstu þremur vikum vegna hugsanlegra verkfalla. Auðvitað afar leiðinlegt að lenda í slíku en fyrst fyrirtæki í landinu sýna því engan áhuga að greiða mannsæmandi laun verður að sýna því skilning.

Þú átt rétt jafnvel þó um verkfall sé að ræða. Mynd Stav
En hver er réttur okkar ef flug okkar tefst eða verður hreint og beint aflýst vegna verkfalls eða verkfalla?
Í stuttu máli má segja að við slíkar aðstæður eru lögin okkur bæði í hag og ekki. Annars vegar eiga flugfélög nokkuð ríkan rétt á að greiða ekki bætur vegna tafa eða seinkana þar sem verkföll eru ekki þeim að kenna. Reyndar er svo í þessu tilfelli að ef kemur til alvarlegra verkfalla ber forstjóri Icelandair og formaður Samtaka atvinnulífsins ríka ábyrgð en það er eins líklegt að verkföll tefji flug easyJet og AirBerlin og Icelandair. Ekki búast við bótum vegna seinkana eða tafa. Jafnvel þó langar séu. Í besta falli getur heimilistrygging eða sérstök ferðatrygging hjálpað eitthvað en ólíklegt samt.
Öðru máli gegnir um aflýsingu flugs. Þá ber flugfélögum skylda til að aðstoða farþega sína með hótel og mat nema þú semjir um annað sérstaklega. Það er skylda allan þann tíma sem verkfall kemur í veg fyrir brottför. Flugfélagið á sem sagt að greiða hótel og mat þann tíma sem það tekur að koma viðskiptavinum á áfangastað. Flugfélagið getur líka samið við þig um endurgreiðslu fargjalds ef það hentar betur.
Ef um pakkaferðir er að ræða er flugfélaginu / ferðaskrifstofunni skylt að koma þér heim á réttum tíma ella hafa ofan af fyrir þér ef það dregst á langinn. Ferðaskrifstofan getur þó ákveðið að setja þig á verra hótel ef verkfall dregst fram úr hófi en að öðru leyti er ráð að skoða smáa letrið í samningnum við viðkomandi ferðaskrifstofu.







