Það er til fólk sem virðist lítið bera virðingu fyrir peningum og svo fólkið sem les Fararheill. Við kunnum leiðir til að spara allgóðan skilding fyrir fólk hafi það áhuga að sjá landsleik Hollands og Íslands í Amsterdam í byrjun september.

Kostulegur leikvangur og kostulegur leikur. En misdýrt að sækja völlinn. Mynd Ro
Tveir aðilar eru, eða hafa verið, að bjóða ferðir á stórleikinn þann. Leik sem gæti ráðið úrslitum um hvaða landslið fer alla leið á Evrópumótið í knattspyrnu og hver situr eftir með sárt enni.
Úrval Útsýn auglýsir ferðir á völlinn eins og lesa má um hér. Hér í boði ferð 2. til 5. september, leikurinn fer fram þann 3. september, og gistingu með plús ferðir til og frá flugvelli og meira að segja íslensk fararstjórn. Einkar athyglisvert er þó að sjá að innifalið í 99.700 króna verðinu er enginn miði á leikinn. Þetta er sem sagt ekki ferð á leikinn heldur bara ferð til Amsterdam. Kostnaður per tvo saman í heildina 199.400 krónur. Með miða á leikinn fyrir báða má bæta fimmtán þúsund krónum ofan á það verð svo útkoman er gróflega kringum 215.000 krónur eða svo.
Icelandair er líka að fara á völlinn eins og lesa má um hér. Þar er reyndar nýorðið uppselt í þriggja nátta ferð sem kostaði manninn 108.900 krónur miðað við tvo saman en í þessu tilfelli var miði innifalinn í verðinu plús gisting auðvitað. Samtala fyrir tvo saman hér alls 217.800 krónur.
Ekki nýtur ritstjórn Fararheill neinna sérstakra kjara á flugi eða gistingu en við getum samt fundið sömu ferð á völlinn á mun lægra verði en báðir þessir aðilar.
Við kaupum flug 2. út og heim 5. september með Icelandair á ódýrasta farrými. Þegar þetta er skrifað fæst flug út og heim þessa daga hjá Icelandair niður í 57.565 krónur eða 115.130 á tvo saman. Því næsta förum við á bókunarvél okkar hér að neðan og finnum gistingu á fínu fjögurra stjörnu hóteli í miðborginni þennan tíma fyrir 46.141 krónu. Bætum þeim kostnaði ofan á og við komin í 161.271 krónu.
Að síðustu leitum við að miðum á leikinn. Allmargir aðilar selja þá gegnum netið og við kjósum að kaupa gegnum Viagogo og kaupum miða sem næst leikvellinum en ekki lengst uppi í rjáfri þar sem aðdáendur útiliðsins eru gjarnan settir. Miðarnir fást á 7.400 krónur á kjaft eða rétt tæpar fimmtán þúsund alls. Bætum þeim kostnaði ofan á og heildarverð því orðið 176.271 króna.
Heildarpakkinn okkar, flug með gistingu plús leikurinn, kostar því manninn 88.135 krónur! Það er 40 þúsund krónum lægra verð á haus en Icelandair og Úrval Útsýn eru að bjóða. Væri ekki nær að eyða því í bjór eða eitthvað skynsamlegt í borginni.
Góða ferð og skemmtun 😉

Skjáskot af bókunarvél Icelandair fyrr í dag. Nóg af sætum til Amsterdam.

Og topphótel miðsvæðis á frábæru verði þennan tíma.







