Ritstjórn Fararheill hefur löngum klórað sér í haus yfir sinnuleysi Icelandair í Orlando í Flórída. Þangað verið flogið beint um áratugaskeið en það er algjör hending ef einhverjar skipulagðar ferðir eða pakkar eru í boði þangað.

Tvöfölt ánægja af ferð til Orlando með þessum hætti. Skjáskot
Það er skrýtið sökum þess að sennilega er hvergi í veröldinni auðveldara að setja saman sniðuga pakka fyrir sólþyrsta Íslendinga með börn eða án. En eftir því sem við komumst næst er úrvalið að mestu takmarkað við bíla og bifhjóladellukalla. Stöku aðilar aðrir bjóða golfferðir hingað en þá er það upptalið.
Öðru máli gegnir um Virgin Airlines í Bretlandi. Samnefnd ferðaskrifstofa þess flugfélags býður fjölga pakkaferða til Orlando og nágrennis og okkur sýnist að stundum sé einfaldlega ódýrara að fljúga til London og þaðan til Orlando en beint héðan.
Áhugasamir um annað á Flórída en að hanga á gylltum ströndum eða iðagrænum golfvöllum og hafa verslað sig upp í háls ættu að kíkja á hvað Virgin er með í boði. Til dæmis fjölda fínna pakka sem innihalda flug, gistingu plús siglingar í viðbót.
Þannig er til dæmis nú hægt að kaupa þar fjórtán daga túr í nóvember þar sem innifalið er flug til og frá, gisting á I-Drive á fínu hóteli í tæpa viku plús ljúf sigling um karabíska í sjö daga til viðbótar. Þúsund flugur slegnar með einu slíku höggi. Nægt tækifæri til að versla, sjá og prófa en í þokkabót kveikja neista í kulnað samband með dúllulegri siglingu. Og miðað við skilnaðartíðni á Fróni veitir nú kannski ekki af. Verð á slíkum pakka niður í 240 þúsund á mann plús þá flug til og frá Íslandi í ofanálag. Það skrambi góður díll þrátt fyrir það.
Kíkið á hvað Virgin er að bjóða hér.







