Það labba engir aukvisar inn á Belmond Caruso hótelið í Ravello á Amalfi ströndinni á Ítalíu. Þar kostar helgardvöl hátt í hálfa milljón króna þrátt fyrir rúmlega 20 prósenta afslátt.

Hálf milljón króna kostar helgargisting hér.

Hálf milljón króna kostar helgargisting hér.

Hótelið er nú heldur ekkert slor. Það er í raun eldgamall lítill uppgerður kastali á einhverjum allra besta stað á annars stórfenglegri Amalfi ströndinni. Enginn þarf þó að hafa áhyggjur af fúkkalykt mikið því hér hefur allt verið gert upp eftir kúnstarinnar reglum og peningar þar engin fyrirstaða.

Samkvæmt hótelbókunarvél okkar kostar helgardvöl hér utan annatíma vart undir 550 þúsund krónur en við fáum reyndar drjúgan 30 prósenta afslátt þann tíma sem við skoðuðum. Verðið engu að síður tæplega 420 þúsund fyrir þrjár nætur eða 140 þúsund krónur nóttin.

Kjörhótel fyrir vildarvini Arion banka. Við hin þurfum aðeins að leggja fyrir til að dúllast hér stundarkorn.

bel