Lítt hefur farið fyrir því hérlendis en kínverskir túristar þykja þeir ömurlegustu í víðri veröld. Nýríkir Kínverjar virðast margir glóru- og skeytingalausir um siði og venjur erlendis og allmargar þjóðir gripið til sérstakra ráðstafana vegna þeirra. Það hefur kínverski kommúnistaflokkurinn nú líka gert.

Kínverjar virðast sumir ekki alveg með hlutina á hreinu. Mynd KMG
Í fyrri viku birtist opinber tilkynning frá ferðamálaráði Kína í opinberu málgagni þess efnis að ímynd Kína hefði skaðast alvarlega vegna heimskulegra gjörða kínverskra ferðamanna erlendis. Slíkt yrði ekki liðið, kenna þyrfti slíku fólki lexíu og að eftirleiðis yrði sérstök eftirlitsnefnd skipuð til að fylgjast með fréttum af heimskugjörðum Kínverja erlendis og þeim refsað er heim væri komið ef ástæða þætti til.
Nú má deila um hvað flokkast sem heimskulegt og hvað ekki. Einhverjir gætu sett æði stór spurningarmerki við eftirlitsnefnd um að fólk hagi sér vel erlendis. Fangelsi víða á vesturlöndum væru töluvert fleiri en þau eru ef þangað færu allir þeir sem haga sér eins og fífl erlendis. Líklega hér heima líka.
En vissulega hafa kínverskir ferðamenn ekki alveg verið með kollinn í lagi og þarf ekki kínverska túrista til. Skammt er síðan nokkrir kínverskir sendiráðsstarfsmenn hérlendis náðust með allt niður um sig við ólöglegar veiðar í dýrri laxveiðiá. Kínverskir túristar hafa skemmt ómetanlegar fornminjar í Egyptalandi. Kínverskum túristum þykir ekkert tiltökumál að gera númer tvö í næsta blómabeði ef því er að skipta. Nefborun virðist þjóðaríþrótt miðað við fjölmargar fregnir af slíku uppátæki og einhverjum Kínverjum þykir hið sjálfsagðasta mál að pissa í sundlaugar. Svo fátt sé talið sem auðfundið er með einföldu gúggli.







