Ritstjórn Fararheill hefur annars lagið gegnum tíðina bent áhugasömum á þá snilldarleið til að komast í sól og þokkalega sælu fyrir mun lægri pening en annars með heimsókn til Túnis. En það vart góð hugmynd lengur.

Belvedere lystigarðurinn er sá elsti í Túnis og eitt af djásnum landsins. Mynd Dennis Jarvis

Belvedere lystigarðurinn er sá elsti í Túnis og eitt af djásnum landsins. Mynd Dennis Jarvis

Það var sennilega aðeins tímaspursmál hvenær en ekki hvort ofbeldismenn réðust á erlenda ferðamenn í Túnis eins og gerðist í morgun með hræðilegum afleiðingum. Tímaspursmál sökum þess að samtökin ISIS hafa komið sér fyrir í borgunum Sirte og Misrata í Líbíu og hafa ítrekað hótað því að strandhögg verði gert í Evrópu fyrr en síðar. Ekkert allt of langt frá Sirte og Misrata yfir landamærin til Túnis og frá nyrsta odda Túnis ekki nema 155 kílómetrar til Sikileyjar á Ítalíu. Mun einfaldari leið til Evrópu en gegnum Tyrkland.

Því ráð að setja sólarferðir til Túnis á ís í bili eða Ísis í þessu tilfelli. Þar eru stjórnvöld veik fyrir og róstur innanlands algengar. Kjörlendi sem sagt fyrir vígamenn íslamista og aðra vanheila menn og líklega ár og dagur áður en búið verður að ráða niðurlögum ISIS og tryggja frið og ró að nýju.

Þangað til mælir Fararheill ekki með ferðum til Túnis mikið.