Wow Air leggur nú lokahönd á sína fyrstu vertíð í Ameríkuflugi og hefur flugfélagið fest kaup á tveimur glænýjum Airbus vélum af því tilefni.

Þægilegri og nútímalegri vélar vestur um haf eftirleiðis. Mynd wow air
Jómfrúarflug Wow Air til Boston hefst í lok næsta mánaðar og og rúmum mánuði síðar, í byrjun maí, flýgur svo fyrsta vél þeirra til Washington D.C. Þar með lýkur einokun Icelandair á þessum flugleiðum og ef allt er eðlilegt ættu flugfargjöld til beggja borga að lækka.
Þetta munu vera fyrstu vélar Wow Air en fyrirtækið hingað til leigt vélar til reksturs. Um er að ræða tvær A321-211 vélar og nokkuð rúmt verður um farþega því pláss er fyrir 230 farþega en Wow Air hyggst aðeins koma fyrir 200 sætum.
Spennandi tímar framundan.







