Tilboðsdeild Icelandair hefur vaknað til lífs á nýju ári. Þriðja hraðtilboð flugfélagsins séð dagsins ljós 2015 og einir átta áfangastaðir í boði á lækkuðu verði næsta sólarhring.

Átta áfangastaðir á vægara verði en venjulega.
Eins og sést á meðfylgjandi skjáskoti er um töluvert að velja eigi fólk heimild á kortinu eða seðla undir kodda.
Billund, Bergen og Manchester aðra leið með alles á 14.900 eða fram og aftur kringum 30 þúsund krónur. Aðeins dýrara til Zürich, Hamborgar og Frankfurt og svo Halifax og Vancouver.
Gróflega má segja að hér sé fólk að spara tíu til fimmtán þúsund krónur að lágmarki báðar leiðir versus að kaupa á hefðbundu fargjaldi flugfélagsins. Alla munar um það.
Sem fyrr er flugfélagið þó að setja skorður á pakka sína. Nýta verður flugið í maí eða júní en þau detta flest dauð niður um miðjan júní. Eftir það gildir þetta aðeins upp í aðrar og dýrari ferðir.
Svo er enn við lýði hjá Icelandair hið gamalkunna „lágmarksdvöl er aðfaranótt sunnudags“ en slíkt ákvæði dó víðast annars staðar um svipað leyti og risaeðlurnar hurfu. Þetta merkir í raun að kaupandi verður að gista úti framyfir helgi því tilboðsfargjöldin gilda yfirleitt lítið á sunnudögum. Sem kannski á ekki að koma að sök hjá mörgum en uppátækið sannarlega úrelt.
Veistu ekkert hvað þú átt af þér að gera þarna úti? Fararheill til bjargar. Vegvísar til Bergen, Halifax, Frankfurt, Hamborgar, Billund.
Þjóðráð er líka sem fyrr að blanda saman tilboðsfargjöldum og svo bóka gistingu á heimsins bestu hótelvél tvö ár í röð hér að neðan 🙂







