Þar kom að því. Í fyrsta skipti í sögu Kúbu er hægt að brúka þar kreditkort frá bandarísku fyrirtæki en Mastercard er fyrsta kortafyrirtæki Bandaríkjanna sem opnar fyrir greiðslugáttir á Kúbu.

Líklega strax næsta sumar verður hægt að nota öll kreditkort á Kúbu. Mynd Tal Pan of HK
Það var eins og við manninn mælt að stórfyrirtæki vestanhafs voru fljót til þegar ljóst varð fyrir skömmu að tekin yrðu upp eðlileg samskipti landanna tveggja eftir áratugalanga óvináttu.
Mastercard er þó ekki eina fyrirtækið sem hugsar sér gott til glóðar því kannanir vestanhafs sýna að áhugi á ferðum til Kúbu er verulegur. American Express hefur sömuleiðis tilkynnt að þeirra kort verði nothæf á Kúbu innan tíðar. Gera má ráð fyrir að Visa fylgi í kjölfarið. Hafa skal þó í huga varðandi Mastercard að fyrst um sinn er aðeins um bandarísk kort þeirra að ræða sem nothæf eru.
Minnst þrjú flugfélög hafa þegar gefið út tilkynningu um að boðið verði upp á áætlunarflug um leið og ferlið hefur allt gengið sinn veg. Það eru Delta, JetBlue og United sem bíða öll klár með áætlanir og vélar um leið og grænt ljós fæst á almenn ferðalög milli landanna. Ekki er þó búist við að það verði fyrr en með vorinu í fyrsta lagi en æði margir gamlir hnútar sem stjórnvöld þurfa að leysa svo allir fari sáttir frá borði.







