Menn verða að fara að gæta sín hjá sjálfskipuðu lággjaldaflugfélaginu Wow Air til að missa ekki þann stimpil. Í ljós kemur í úttekt Fararheill að Icelandair er að bjóða lægra verð til Mílanó á Ítalíu í allt sumar.

Miklu dýrara með Wow Air til Mílanó þetta sumar.

Miklu dýrara með Wow Air til Mílanó þetta sumar.

Ekki er Icelandair lággjaldaflugfélag svo sú niðurstaða er áfellisdómur yfir flugfélagi Skúla Mogensen. Icelandair reynist bjóða lægsta verð júní og ágúst aðra leiðina út frá Keflavík en Wow Air er einum þúsundkalli ódýrari í júlí. Það hins vegar breytist um leið og fólk tekur eina tösku með. Þá er flug með Wow Air dýrara í allt sumar.

Þetta má glögglega lesa á töflunni hér að neðan en leitað var samstundis á vefum beggja flugfélaga að lægsta verði á flugi aðra leið til Mílanó með sköttum og gjöldum alla þrjá mánuðina.

Hafa skal kyrfilega í huga að munurinn er reyndar meiri en hér sést því 20 kílóa farangur er innifalinn hjá Icelandair en ekkert slíkt hjá Wow Air. Með það í huga má segja að Icelandair sé að bjóða langtum betur.

* Samanburður gerður kl. 14 þann 26. janúar 2015. Hafa skal hugfast að verðbreytingar eru örar.