Það er fátt meira pirrandi en finna eitthvað tímabundið en sallafínt tilboð á vöru eða þjónustu á netinu og geta ekki með nokkru leyti keypt eða bókað. Sem er töluvert vandamál á vef Heimsferða.

Mörg góð tilboð og eitt frábært samkvæmt vef Heimsferða. En ekki alveg. Skjáskot
Við höfum áður fjallað um skrambi góð tilboð ferðaskrifstofunnar þegar skammt er til brottfarar. Það oft kallað „stökktu tilboð“ og dekkar venjulega ferðir næstu daga, viku eða tvær fram í tímann. Með öðrum orðum þarf að hafa hraðar hendur og afar ljúfan forstjóra til að stökkva á slík tilboð.
Það getur margborgað sig þó auðvitað sé ekki gefið að slíkar skynditilboðsferðir séu ávallt til sölu. Heimsferðir auðvitað bara að selja sín síðustu sæti og lágmarka tapið eða hámarka gróðann. Laust sæti í ferð er dautt sæti og enginn græðir á því.
Þegar þetta er skrifað má til að mynda finna eitt frábært ferðatilboð til Kanarí í febrúar og nokkur aldeilis ágæt tilboð að auki á sérstakri tilboðssíðu Heimsferða. Flug á hálfvirði 26. og 27. janúar er fínasti díll til dæmis.
Frábæra tilboðið er tveggja vikna ferð 12. febrúar til Kanarí með öllu inniföldu á fínu hóteli frá 149.900 krónur á mann miðað við tvo saman. Alls 299.800 krónur á hjón eða par. Bara frábært tilboð og skjagar upp í það besta sem býðst víða erlendis.
Þá kemur babb í ferð.
Umrætt hótel er alls ekki í boði í bókunarvél Heimsferða 12. til 26. febrúar. Þar kemur Sevatur Waikiki alls ekki upp og þaðan af síður eitthvað sértilboð. Lægsta verð á ferð í 14 nætur þessar dagsetningar er rúmlega 428 þúsund á par eða hjón. Nóg er samt eftir af flugsætum þessar dagsetningar svo ekki er það vandamálið.
Til að gæta sanngirni kann vel að vera að einhver hafi keypt síðustu sætin í þessa ferð fyrir nokkrum sekúndum en það breytir ekki því að neytendalög kveða skýrt á um afslætti og auglýsingar. Við eigum rétt á að kaupa ferð á því verði sem auglýst er. Sérstaklega þar sem ekki er kveðið á um neinn fyrirvara á tilboðssíðu ferðaskrifstofunnar. Einhver gæti sennilega fengið það í gegn líka með hörku ef nennir. Hallærislegt samt hjá stórri ferðaskrifstofu að vera ekki með nægilega góðan vef til að taka niður tilboð um leið og það er uppselt sé það raunin.







