Þó flugleitarvél Dohop hafi nýverið hlotið verðlaun sem besta flugleitarvélin þetta árið er ekki þar með sagt að fyrirtækið finni lægstu fargjöldin öllum stundum.

Besta flugleitarvél ársins er ekki endilega alltaf að finna lægstu fargjöldin.
Fararheill hefur fjallað um þetta áður en þar sem góð vísa er aldrei of oft kveðin er sjálfsagt að minna á þetta fólki til hagsbóta og sparnaðar.
Dohop er vissulega góð til brúksins eins og ítrekaðar úttektir Fararheill hafa leitt í ljós undanfarin ár. Oft finnur sú flugleit mun hagkvæmari leiðir til ferða en samkeppnisaðilar en eins og öllum er hollt í einu og öllu í lífinu er að taka hlutum með smá salti.
Í þessu tilfelli vegna þess að Icelandair leyfir Dohop ekki að mjólka beint af kúnni ef svo má að orði komast. Dohop þarf að fara krókaleiðir gegnum þriðja aðila til að birta verð á flugi íslenska flugfélagsins. Sú krókaleið kostar aukalega í sumum tilfellum en sparar líka peninga í öðrum. Það er dálítið happa og glappa.
Auðvelt er að ganga úr skugga um þetta. Þessa stundina finnast sem dæmi flug fram og aftur til Boston 8. til 15. janúar á vef Icelandair fyrir 105.265 krónur en lægsta verð sem Dohop finnur á því flugi er 106.655 krónur. Ekki stórir fjármunir en samt peningar.
Á móti kemur þá geta umræddir milliliðir Dohop einnig á stundum fundið lægra verð á flugi en Icelandair býður sjálft á vef sínum. Dæmi um það þegar þetta er skrifað er flug til München með Icelandair þann 14. febrúar og heim aftur þann 22. febrúar. Hjá Icelandair fæst flugið á 45.735 krónur á kjaft. Dohop finnur sömu flug á 41.811 krónur.
Í þriðja lagi sökum þessa finnur Dohop stundum alls ekki flug með Icelandair. Á vef Icelandair er komist 10. til 20. mars til Orlando og aftur hjem fyrir 108.365 krónur. Leit að beinu flugi á þessari dagsetningu hjá Dohop skilar engri niðurstöðu.
Sem sagt, verðlaun eða ekki verðlaun, þá er allra best að taka hlutum með salti. Líka verðkönnunum sem Dohop sendir fjölmiðlum reglulega. Hvergi kemur þar fram hvort Dohop er þar að miða við verð sem finnast á vef Dohop eða raunverð á vefum flugfélaganna. Það þarf ekki að vera einn og sami hlutur.







