Af og til fáum við skeyti frá miður hófsömum einstaklingum. Viðkomandi eru ósáttir við að ritstjórn skuli sýknt og heilagt lýsa yfir frati á rammíslenskar ferðaskrifstofur. Fyrir að segja þær aftan úr fornöld og bera álagningu þeirra saman við mafíustarfsemi.

Strandbærinn Los Cristianos á Tenerife er vinsæll fyrir norræna ferðamenn. Mynd Carmen
Við erum sek um þetta allt nema að bera álagningu saman við mafíustarfsemi og gegnum tíðina höfum við sannarlega og ítrekað fært rök fyrir hvers vegna það er okkar skoðun. Hvergi á byggðu bóli í Evrópu eða Norður Ameríku kosta ferðalög slíkar upphæðir sem innlendir aðilar krefjast. Dæmin um slíkt finnast í hundraðatali á vef Fararheill kæri fólk sig um að skoða.Við höfum hins vegar ekki heyrt nein mótrök fyrir himinhárri verðlagningu flestra aðila.
Eitt enn. Hefur einhver velt fyrir sér hvers vegna hátt í 30 ferðaskrifstofur eru starfandi hérlendis? Finnst engum það dálítið mikill fjöldi. Allar virðast þær þrífast ágætlega ár eftir ár. Við erum jú rúmlega 300 þúsund í heildina en að frátöldum öldruðum, börnum og nokkrum fjölda sem aldrei ferðast er heildarfjöldi fólks sem ferðast reglulega sennilega kringum 240 þúsund alls. Ef sú ágiskun er rétt er ein ferðaskrifstofa hérlendis á hverja átta þúsund einstaklinga. Í evrópskum samanburði er það algjört heimsmet. Og hvers vegna skyldi vera svona eftirsóknarvert að reka ferðaskrifstofu á klakanum? Getur verið að mikil álagning sé að skila feitum arði í vasa?
Dæmið hér að neðan gæti varpað meira ljósi á þann leyndardóm ef hinar þúsund greinar okkar hafa ekki sannfært þig ennþá.
Næsta janúar er ferðaskrifstofan Úrval Útsýn, ein af þeim allra stærstu hérlendis, að bjóða ferðir til Los Cristianos á Tenerife. Tveggja vikna ferðin þar sem gist er á sæmilegu íbúðahóteli, Los Alisios, án alls kostar frá 14. janúar til 28. janúar í beinu flugi 178.871 á mann eða alls 357.742 á par eða hjón. Takið sérstaklega eftir að hér er um TILBOÐSFERÐ að ræða. Um beint flug er að ræða að heiman og heim.
Sama janúarmánuð en aðeins fyrr er norska ferðaskrifstofan Ving einnig að bjóða sértilboð til Los Cristianos og svo skemmtilega vill til að þar er sama hótel, Los Alisios, í boði. Allmargar dagsetningar í boði og verð breytileg en lægsta verðið er milli 4. janúar og 18. janúar. Kostnaður á mann þær tvær vikur miðað við gengi dagsins er 89.876 krónur eða alls 179.950 krónur fyrir par eða hjón. Um beint flug er að ræða.
Verðmismunurinn á par eða hjón á þessum sams konar ferðum á gróflega sams konar tíma og á tilboði hjá báðum aðilum er hvorki meira né minna en 177.792 krónur!!!!*
Hvernig gæti staðið á þessu? Sama hótel, svipaður tími, ekkert meðfylgjandi og beint flug í báðum tilfellum. Samt munar hér fáránlegri upphæð? Og við höfum ekki ennþá bent lesendum á að flugtími, það kostnaðarsama við ferðalög, er mun lengri frá Osló en Keflavík. Flugtími frá Osló er næstum heilli klukkustund lengri í heildina fram og aftur. Né heldur höfum við tekið tillit til launa í löndunum tveimur en meðallaun í Noregi eru um það bil tvöfalt hærri en hérlendis. Það er að segja að starfsfólk Ving og flugfélagsins er að njóta töluvert hærri launa en fólkið hjá Úrval Útsýn og Primera Air eða hverjum þeim sem flýgur fyrir hönd íslensku ferðaskrifstofunnar.
Ef allt væri hér eðlilegt ætti ferð Úrval Útsýn að kosta helmingi minna en ferð þeirra norsku. En merkilegt nokk kostar hún helmingi meira! Hverjum þeim sem finnst þetta hið eðlilegasta mál ætti að hætta samstundis á þessum pillum og vakna til lífsins.
* Ekki halda að verðlagning Úrval Útsýn sé frábrugðin en hjá öðrum innlendum aðilum . Verð á ferðum flestra aðila er keimlíkt og litlu munar.

Verð fyrir tvo með Ving til Tenerife í janúar

Ferð ÚÚ til sama staðar í sömu tvær vikurnar







