Sextíu og fjórar klukkustundir eru liðnar síðan lettneska flugfélagið Primera Air hóf fyrst að auglýsa og selja sæti til nokkurra nýrra áfangastaða sinna beint frá Íslandi. Einn af þeim er tyrkneska borgin Milas sem er fínt fyrir alla þá sem langar til Marmaris, Bodrum eða Antalya á eigin spýtur. En eitthvað er skringilegt í gangi.

Verðhækkun hjá Primera í hvert sinn sem fjögur sæti seljast…
Beint flug er reyndar afar óreglulegt til Milas næsta sumarið ef marka má bókunarvél Primera. Þangað er aðeins komist á þriggja vikna fresti sem þýðir að sá sem vill grípa gæs þarf að dvelja þann tíma hið minnsta í Tyrklandinu. Það er ágætt fyrir marga en síður fyrir aðra enda funhiti við Miðjarðarhafið og það þola Íslendingar misvel.
Það er þó ekki aðalatriði heldur hitt að alveg sama er hvort flugmiðinn fram og aftur kostar 60 þúsund eða 80 þúsund, það eru aðeins FJÖGUR sæti eftir á því verði sem auglýst er á ÖLLUM dagsetningum.
Það eru bara fjögur sæti eftir til Milas á 29.900 krónur manninn í lok maí, um miðjan júní, byrjun júní og lok ágúst. Líka einungis fjögur sæti eftir á 37.990 krónum í ágúst og sömu sögu að segja í byrjun september.
Með öðrum orðum, þá virðist Primera hækka verð á flugsætinu um leið og aðeins fjögur sæti eru seld. Nema það séu aðeins fjögur sæti eftir á öllum dagsetningum til Milas. Sé raunin hið síðarnefnda er lítið á þessari flugleið að græða fyrir almenning. Til Milas komast þá aðeins SEX fjögurra manna fjölskyldur allt sumarið.
Að gefa upp takmarkaðan sætafjölda á tilteknu verði er algeng taktík hjá lággjaldaflugfélögum en Primera Air hefur aldrei kynnt sig sem slíkt flugfélag og verð almennt með flugfélaginu ekki á þeim nótum þó vissulega hafi fyrirtækið flogið afar ódýrt til Billund og Köben hér áður.
Er þetta góður díll?
Lægsta verð fram og aftur sem Fararheill finnur til Milas þegar þetta er skrifað á vef Primera til Milas á manninn er 60.677 krónur í lok maí. Margföldum það með þremur í tilfelli fjögurra manna fjölskyldu og þá kostar flugið alls 242.708 krónur.
Á bókunarvél Fararheill finnum við íbúðahótel í þrjár vikur yfir sama tíma og flugið lægst niður í 154 þúsund krónur fyrir herbergi með fjórum rúmum. Þar þó aðeins þriggja stjörnu íbúðahótel og aðeins morgunverður innifalinn. Lægsta verð á fjögurra stjörnu hóteli við ströndina með öllu inniföldu finnst lægst á Bodrum Beach Resort á 280 þúsund krónur.
Með þessum hætti nýtur fjögurra manna fjölskyldan lífsins í Tyrklandi í byrjun júní í þrjár vikur fyrir alls 522.708 krónur. Þú verður að gera upp við þig hvort það hljómar vel samanborið við tilboð annarra sem bjóða Tyrklandsferðir næsta sumarið. Sem dæmi er í boði að fara með ferðaskrifstofunni Nazar til Antalya í tvær vikur á þriggja stjörnu hóteli með öllu inniföldu yfir sama tíma fyrir 422.000 krónur. Hótelið lakara og viku vantar upp á svo það er spurning hvort það sé nógu mikill munur til að grípa gæs.
En auðvitað er byrjun júní ódýrasta tímabilið. Skoðaðu endulega hótelvef okkar hér að neðan og berðu saman aðrar dagsetningar. Kannski finnurðu eitthvað stórkostlegt.
PS: Sé Primera Air að taka upp lággjaldahanskann er óhætt að bera þá saman við flug fram og aftur frá Osló til Antalya á sama tímabili. Þar finnum við flugið á mann báðar leiðir niður í nítján þúsund krónur með Norwegian.







