Viðurkenndu það bara. Þig hefur alltaf langað að upplifa hina syndsamlegu borg Pattaya í Tælandi og draga þínar eigin ályktanir. Ekki verra að gera það í fimm stjörnu lúxus í vikutíma og á alveg vel frambærilegu verði.

Ekkert vantar upp á freistingarnar í Pattaya fyrir marga. Þangað nú komist fyrir lítið.

Ekkert vantar upp á freistingarnar í Pattaya fyrir marga. Þangað nú komist fyrir lítið.

Svo vel vill til að nú má komast þráðbeint, eða því sem næst, til Pattaya með bresku ferðaskrifstofunni Travel Interaction og gista þar í góðu yfirlæti á fjögurra stjörnu hóteli með morgunmat í vikutíma fyrir 136 þúsund krónur á mann miðað við tvo saman. Það er 30 prósenta afsláttur um það bil frá því sem venjan er en flugfarið eitt og sér skjagar oftar en ekki upp í hundrað þúsund á mann almennt. Ekki miður heldur að flogið er frá Gatwick en þangað fljúga Wow Air, Icelandair og easyJet héðan og því hæg heimatök að finna lág fargjöld þangað.

Pattaya er sannarlega ekki allra. Hermann Gunnarsson heitinn fór ekki annað og þeir eru fleiri sem þangað fara ár eftir ár eftir ár. En hvað Fararheill varðar dugði ein ferð til. Borgin er lítt spennandi, ströndin einhver sú versta í landinu, svik og prettir algengir og varla þverfótað fyrir gleðikonum og búllum sem eru ógeðslegri en fitusog. En það er bara okkar skoðun og kannski við að mála þetta of dökkum litum. Í öllu falli er veðrið yndislegt og verðlagið ekkert til að kvarta yfir heldur. Hér má sjá vegvísi okkar til borgarinnar hafi fólk áhuga að kynna sér meira.

Hér hins vegar er tilboð bresku ferðaskrifstofunnar en það gildir frá komandi nóvember og langt fram á næsta ár.