Sitt sýnist hverjum um Kína og víst eru margir Vesturlandabúar sem ekki hafa gaman af heimsókn til þessarar þjóðar sem brátt mun verða heimsins öflugasta ríki í öllu tilliti.

Suzhou hefur komist á blað sem ein af fallegri borgum Kína. Mynd Russ Bowling

Suzhou hefur komist á blað sem ein af fallegri borgum Kína. Mynd Russ Bowling

Ýmislegt fer fyrir brjóst þeirra sem þangað halda til dægradvalar og oftast nær nefndur maturinn. Ekki síður þykir miður hve mengun er mikil og áberandi víðast hvar í landinu og í þriðja stað er Kína nútímans fjarri því að vera ódýr áfangastaður. Því þótt þar sé vissulega hægt að versla fyrir lítið kostar öll þjónusta, gisting og ferðir innanlands síst lægri upphæðir en í Evrópu til að mynda.

En hvað Kína varðar er aldeilis fráleitt að alhæfa nokkurn hlut. Landið svo stórt, mikið og fjölbreytt að það tæki ferðamann áratugi að komast yfir allt sem þar er forvitnilegt að sjá.

Frá Íslandi hefur reglulega verið hægt að komast í sérferðir til Kína með ferðaskrifstofunum annars lagið. Þær ferðir kosta oftast skildinginn og ein milljón króna á par ekki fjarri lagi svona almennt.

Þess vegna ætlum við að benda áhugasömum á að ferðaskrifstofan Rewards China í Bandaríkjunum er nú að bjóða níu daga lúxusferð frá Boston meðal annars fyrir hlægilega litlar 122 þúsund krónur á mann miðað við tvo saman. Skeyttu því saman við flug til og frá Boston og þannig hægt að njóta einhverra dásemda Kína vel undir 200 þúsund krónum alls á mann. Þar miðað við lægstu fargjöld Icelandair til Boston þennan veturinn sem fást kringum 60 þúsund krónur.

Ferðin umrædda er í boði fyrir lesendur tilboðsvefsins Living Social en í þann klúbb er komist einfaldlega með því að skrá sig og það kostar ekki krónu. Ferðaskrifstofan fær toppeinkunn og eins og sjá má af leiðalýsingu er hér margt girnilegt á dagskránni og fjölmargt innifalið líka.

Allt um málið hér