Þar fauk síðasta vígið eða því sem næst. Flugöryggisstofnun Evrópu, EASA, hefur gefið grænt ljós á notkun allra rafeindatækja um borð í farþegavélum.
Fátt því til fyrirstöðu eftirleiðis að röfla sig hás í símanum á löngu og leiðinlegu flugi ef svo ber undir þó reikningnum fyrir slíkt gæti orðið erfitt að kyngja.
Þó þessi hindrun sé úr vegi enda fyrir löngu búið að sanna að rafeindatæki hafa engin áhrif á stjórntæki flugvéla er það þó í höndum flugfélaganna sjálfra að ákveða hvort og hvenær farþegar mega brúka tæki sín um borð. Sérstakt leyfi þarf þó enn fyrir slíku þó EASA hafi fellt niður öll takmörk.
Það er reyndar eitt sem flugfélögin verða að hafa í huga varðandi þetta. Þótt þetta sé vissulega aukin þjónusta er hætt við að einhverjir séu ekki sáttir við blaðrandi farþega sér við hlið. Farþegarýmið er jú engin einkastofa og nóg er víst um blaður í farsíma þess utan.








