Það var eiginlega ekki seinna vænna. Frá og með næsta sumri geta næturuglur í London loks komist leiðar sinnar um borgina með jarðlestum borgarinnar.
Þrátt fyrir að vera milljónaborg hefur jarðlestakerfi London aldrei verið opið að næturlagi þó köll hafi verið eftir slíku reglulega síðustu ár og áratugi. Allar lestir hætta keyrslu klukkan eitt á næturnar og þær fyrstu á morgnana aka ekki af stað fyrr en uppúr klukkan fimm.
En sumarið 2015 breytist þetta að hluta til. Þá munu lestir á minnst fimm helstu leiðum keyra 24 tíma á sólarhring föstudaga og laugardaga. Alveg kjörið fyrir djammara og þeir ekki fáir í London enda töluvert ódýrari kostur en leigubíll og yfirleitt töluvert fljótlegra en strætisvagnar.
Sex lestir munu ganga hverja klukkustund á þeim fimm leiðum sem opnar verða á næturnar. Það eru Piccadilly, Central, Victoria, Jubilee og Northern.
Heimur batnandi fer.








