Aumingja Justin Bieber. Frægðin stigið honum til höfuðs svo mjög að þrátt fyrir að njóta vinsælda um heim allan kjósa fáir að ferðast með honum ef tækifæri gæfist til.

Vinsæll söngvari en síður sem ferðafélagi. Justin Bieber í Disneyworld. Mynd Ricky Brigante

Vinsæll söngvari en síður sem ferðafélagi. Justin Bieber í Disneyworld. Mynd Ricky Brigante

Bieber litli varð næstum neðstur í hópi ofurstjarna samkvæmt skemmtilegri könnun sem vefmiðillinn Icelolly framkvæmdi. Aðeins 37 prósent aðspurðra kæra sig um að ferðast með honum. Aðeins Miley Cyrus þótti minna spennandi ferðafélagi.

Að sama skapi kemur ekki ýkja mikið á óvart hvaða stjörnum almúginn vildi helst ferðast við hlið í flugvél. Þar eru langefst á blaði söngkonan Beyoncé og kvikmyndaleikarinn Brad Pitt. Aðrar stjörnur sem fólk telur þess virði að ferðast með eru Rihanna og Lady Gaga auk minna spámanna sem lítt eru þekktar hérlendis.