Það er ekkert lítið gaman að lifa þessa dagana fyrir þau okkar sem eiga bágt með andardrátt nema komast í ferðalög reglulega. Víðs vegar í Evrópu eru ferðaskrifstofur að slá mjög duglega af alls kyns ferðum og nú næstu mánuði má til dæmis sigla í hreinum lúxus á skemmtiferðaskipi um Miðjarðarhafið í rúma viku á helmingi lægra verði en venjulega.
Það þýðir að átta daga sigling um borð í nýju skemmtiferðaskipi í káetu með svölum og auðvitað matur og drykkir innifalið kostar manninn nú allt niður í 90 þúsund krónur miðað við tvo saman. Sá prís finnst á ferðum í október, nóvember, desember og janúar þegar þetta er skrifað. Auðvitað mun lægra verð kjósi fólk innriklefa.
Gallinn við pakkann er að það er frönsk ferðaskrifstofa að bjóða þessa fínu afslætti og það er siglt úr höfn frá hafnarborginni Marseille og endað þar líka.
Sem þýðir að áhugasamir verða að finna leið til að komast til Marseille á fljótlegan og auðveldan hátt. Það er ekki í boði án millilendingar og þá er London best til brúksins. Fjölmörg lágfargjaldaflugfélög fljúga þaðan til Marseille og héðan er hægt að fá lág fargjöld líka næstu mánuðina.
Spurningin er því sú, hvort ferðaþorstinn sé nógu mikill til að láta sig hafa smá vesen að komast á staðinn en njóta á móti vellystinga á helmingi lægra verði en annars.








