Þig dauðlangar allt í einu til New York. Ekki aðeins þarftu að lyfta þér aðeins upp í alvöru siðmenningu heldur og kaupa föt á börnin og makann á verði sem eðlilegt er. Góð ráð eru þó yfirleitt mjög dýr í þessu tilfelli.
Sjáðu til, það hefur jafnan verið viðskiptamódel Icelandair og Delta sem eru einu flugfélögin sem fljúga milli Keflavíkur og New York að selja á hæsta verði þær ferðir sem stutt er í. Þannig þarf sá sem getur ekki á sér heilum tekið nema komast til New York strax að greiða að minnsta kosti 65 þúsund krónur með Icelandair miðað við bókunarstöðu þegar þetta er skrifað tvær vikur fram í tímann. Það er bara önnur leiðin og fram og aftur komið vel yfir hundrað þúsund krónur.
En hvað ef hægt væri að komast til New York strax á föstudaginn kemur og það niður í nítján þúsund krónur aðra leiðina?
Norwegian til hjálpar. Norska lággjaldaflugfélagið er að bjóða nýjung á vef sínum þennan daginn sem þeir kjósa að kalla Weekend special. Ekki aðeins er þar um gjafverð á tilteknum flugum að ræða heldur og með litlum fyrirvara eða allt niður í fjóra daga. Og lægsta verð aðra leið milli Osló og New York í þarnæstu viku er 18.626 krónur miðað við gengið. Þar auðvitað er enginn farangur innifalinn og við þurfum auðvitað líka að koma okkur til Osló í einum grænum sem getur reynst flókið og dýrt. En ekki alltaf.
Sjálfsagt að hafa þennan möguleika í huga ef vesturferð er algjört möst eins og sagt er.








