Það er þitt mál hvað þú gerir við peningana sem Frúin í Hamborg gaf þér eða þú vannst þér inn fyrir misskemmtilega vinnu fyrir misgáfaða yfirmenn með tárum, svita og blóði.

Gerðu verðsamanburð og vertu í kjölfarið velkomin(n) í viðskipti :)

Gerðu verðsamanburð og vertu í kjölfarið velkomin(n) í viðskipti 🙂

En hvort sem þú átt tugmilljónir sem sitja bara í bankanum eða nærð varla endum saman um hver mánaðarmót er æði líklegt að þú þolir ekki að henda peningum á glæ.

Þá er líka líklegt að þú elskir hótelleitarvél Fararheill. Sem kann að hljóma eins og við séum að setja okkur á háan hest. En ólíkt 99 prósent þeirra sem ota að þér tilboðum sem virðast of góð til að vera raunveruleg skömmumst við okkar ekki hætishót að mæla með þeirri vél. Sökum þess að sú finnur lægsta verð á gistingu alls staðar í heimnum. Punktur!!!!

Við vitum að þú trúir okkur ekki og við álösum þér ekki fyrir það. Það er jú reyndin að flest þau fyrirtæki sem lofa upp í ermar eru í ermalausum bolum þegar upp er staðið og ekki stendur steinn yfir steini hvað loforðin snertir.

Við ætlum samt að reyna enda er hægt að byggja upp traust þegar vara sem þú hefur í höndunum er raunverulega best í veröldinni. Best í þeim skilningi að hún skilar þér lægsta verði á hótelherherbergi hvar sem er í heiminum. Hótelleitarvél Fararheill dekkar rúmlega 800 þúsund hótel og gististaði í veröldinni. Hótelleitarvél Wow Air dekkar rúmlega 500 þúsund og hótelleitarvél Icelandair rétt rúmlega 125 þúsund. Þetta er varla samkeppni.

Prófaðu bara 🙂