Benídorm, Cinque Terre, Maspalomas eða Krít of leiðigjarnir áfangastaðir fyrir þig? Þú kýst meiri spennu, dýpri upplifun og jafnvel lífshættu inn á milli.

Þó ekki sé nú lífshættulegt að heimsækja Norður Kóreu er sennilega meiri hjartsláttur í brjósti þar en víða annars staðar. Mynd Stefan Krasowski

Þó ekki sé nú lífshættulegt að heimsækja Norður Kóreu er sennilega meiri hjartsláttur í brjósti þar en víða annars staðar. Mynd Stefan Krasowski

Er Gaza meira málið? Kosovó? Serbía? Norður-Kórea? Þið eruð þá ekki ein um áhuga á slíkum ferðum.

Það sem á ensku kallast war tourism, átakaferðir, nýtur merkilega mikilla vinsælda. Skemmst er að minnast þess að nokkrar slíkar ferðaskrifstofur buðu upp á pakkaferðir til Basra og Bagdad nokkrum vikum eftir að þáverandi forseti Bandaríkjanna lýsti yfir lokasigri í stríðinu í Írak. Sem auðvitað voru töluverðar ýkjur enda duttu þær ferðir niður skömmu seinna því átök héldu áfram.

Áhuginn er þó enn til staðar virðist vera. Í Bretlandi eru að minnsta kosti fjórar ferðaskrifstofur sem eingöngu bjóða átakaferðapakka. Þær þó bjóða að megninu til ferðir til svæða þar sem átök standa ekki lengur yfir ellegar er löngu lokið. Hugmyndin að gefa áhugasömum betri innsýn í þá staði sem einoka heimsfréttirnar í lengri eða skemmri tíma.

Tvær slíkar sérstaklega hafa fengið nokkra umfjöllun í erlendum miðlum. Önnur er Political Tours og hin War Zone Tours. Sjálfsagt fyrir áhugasama að skoða það sem í boði er ef þið eruð orðin þreytt á lífinu…