Rússneskir stjórnendur Kaliningrad hafa stóra drauma um sína innilokuðu borg við landamæri Póllands og Litháen. Þá dreymir um að breyta henni á nýjan leik í hina prússnesku Königsberg.

Heillandi á ný. Borgaryfirvöld hyggjast færa Kaliningrad til metorða á næstu árum. Mynd Maks Karochin

Heillandi á ný. Borgaryfirvöld hyggjast færa Kaliningrad til metorða á næstu árum. Mynd Maks Karochin

Sögufróðir vita sem er að það sem nú kallast Kaliningrad var áður fyrr hin merka Königsberg hvers hróður barst víða enda þótti borgin afar falleg og vinsæll ferðamannastaður ríkra og frægra á þeim tíma.

Hún var svo gott sem jöfnuð hundrað prósent við jörðu í sprengjuárásum Seinni heimsstyrjaldarinnar og í dag er fátt sem prýði er að. Þær eldri byggingar sem enn standa hefur ekkert verið haldið við og grotnað niður og þó hér sé spennandi að vera í einn, tvo sólarhringa heillar borgin ekki mikið lengur en það.

En þýska tímaritið Der Spiegel skýrir frá stórhuga tillögum borgaryfirvalda að gera gangskör að því að færa borgina til vegs á nýjan leik og fyrst og fremst með því að færa hana í sitt gamla flotta form. Hugmyndin reyndar lengra komin en það því útboð hefur farið fram og fjöldi stórra verktakafyrirtækja áhugasöm um verkið. Ekkert áhlaupaverk en takist vel til gæti Kaliningrad orðið æði vinsæll áfangastaðir ferðamanna að nokkrum árum eða áratugum liðnum.