Þær skipta hundruðum spennandi siglingarnar sem í boði eru dags daglega frá hinum og þessum höfnum heims. En örfáar eru allmikið meira spennandi en aðrar og við fundum eina sérstaklega sem er makalaust heillandi, endar á óvenjulegum stað og best af öllu að túrinn kostar fáránlega lítið.
Aðeins er ein slík ferð í boði og er stigið um borð í Aþenu í Grikklandi þann 28. nóvember næstkomandi. Við tekur ljúf sigling í heila 25 daga þar sem gestum gefst tækifæri til að hoppa í land í Marseille í Frakklandi, Barcelona á Spáni, Tangier í Marokkó, Funchal á Madeira, Barbados, St.Lucia, Jamaíka áður en ferðinni lýkur á þeim æði merka stað Havana á Kúbu.
Ferðin því ekki aðeins sérstök fyrir lengd og fjölda áfangastaða heldur eru þau ekki mörg fleyin sem heimild hafa til að leggjast við festar á Kúbu. Þetta hægt sökum þess að fyrirtækið sem ferðina býður er kanadískt.
Siglingin sjálf kostar makalaust lítið eða aðeins rétt tæpar 170 þúsund krónur á mann miðað við tvo í innriklefa. Tuttugu og fimm dagar er helst til mikið í slíkum klefa og kjósi fólk útsýni hoppar verð í 212 þúsund á mann. Stór klefi með svölum aftur á móti miklu dýrari eða kringum 315 þúsund krónur á mann.
En þá er reyndar ekki öll sagan sögð því áhugasamir verða sjálfir að koma sér til Aþenu og frá Kúbu. Flug til Aþenu þarf ekki að vera svo dýrt eða flókið en örlítið meira vesen að fljúga heim frá Kúbu. Óhætt að gera ráð fyrir 150 þúsund krónum á mann í flugferðir að auki. Heildarkostnaður á mann miðað við innriklefa gæti því verið kringum 320 þúsund krónur.
Það kann að virðast heldur kostnaðarsamt en til samanburðar er ferðaskrifstofan Vita og ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar að bjóða mun skemmri Kúbuferðir í vetur. Kostnaður á mann hjá Vita 250 þúsund rúmar en mun meira hjá GJ. Í þeim samanburði er siglingin á gjafverði.








