Það þykir ekki sérlega móðins lengur að hlusta á útvarp og allra síst kannski að leggja hlustir við gömlu gufuna. En þar er minnst einn þáttur sem er svo listavel gerður að við fullyrðum að flestir þeir sem er á faraldsfæti til Indónesíu, Balí eða staða í kring munu njóta til fulls.

Það er meira spennandi við Bali en gullnar strendurnar og ódýr bjórinn. Miklu meira. Mynd Jose Javier Martin Espartosa

Það er meira spennandi við Bali en gullnar strendurnar og ódýr bjórinn. Miklu meira. Mynd Jose Javier Martin Espartosa

Þar er vitaskuld verið að meina röð tíu þátta hins víðförla Örnólfs Árnasonar, Mannlíf við miðbaug, en þeir eru á dagskrá á laugardögum og endurteknir á miðvikudögum á Rás 1.

Karlinn vefur listilega saman hagnýtar upplýsingar um hina og þessa áfangastaði og gefur um leið innsýn í þankagang heimamanna, menningu þeirra, hughrif erlendra gesta og bætir um betur með tónlist frá svæðunum sem um ræðir.

Mælum sannarlega með hlustun og sérstaklega sé fólk að pakka ofan í töskur fyrir ferð til Balí eða nágrannastaða. Þannig er pínulítið hægt að komast á áfangastað áður en lagt er í hann.