Hinir undarlegustu hlutir koma upp úr krafsinu þegar grannt er skoðað. Það á sannarlega við um bókunarvél Icelandair sem virðist ekki í öllum tilfellum sýna lægsta verð á stöku flugi þó það sé klárlega í boði.

Ritstjórn var að skoða flugfargjöld til Edmonton í Kanada í byrjun næsta árs og fengum strax sjokk því janúar og febrúar virðist ekkert komist út til Edmonton fyrir minna en 129.915 krónur!!!

Lægsta verð á flugi til Edmonton og til Keflavíkur aftur við fyrstu sýn á vef Icelandair. Skjáskot

Lægsta verð á flugi til Edmonton og til Keflavíkur aftur við fyrstu sýn á vef Icelandair. Skjáskot

Við náðum okkur sem betur fer fljótt eftir sjokkið og um leið vaknaði önnur spurning. Hvers vegna kostar flug út 130 þúsund krónur en flug heim allt niður í 43 þúsund krónur? Er það mótvindurinn? Ókeypis áfengi í boði? Flugstjórinn með uppistand? Verðmunurinn er „aðeins“ rúm tvö hundruð prósent á út- og heimferð.

Flugþyrstir vita mætavel að allra lægstu fargjöld á viðkomandi leið í töflu Icelandair eru merktar bláu. Þannig á fólk strax að finna ódýrustu fargjöldin. En eftirleiðis mun ritstjórn Fararheill allavega hafa mikinn og feitan fyrirvara á því loforði vegna þess sem kom í ljós þegar við breyttum heimfarardeginum frá 17. febrúar til 18. febrúar. Þá kom þetta í ljós:

Viti menn! Lægstu fargjöldin hafa í vetfangi lækkað um tugi þúsunda á sömu dagsetningum. Skjáskot

Viti menn! Lægstu fargjöldin hafa í vetfangi lækkað um tugi þúsunda á sömu dagsetningum. Skjáskot

Við ætluðum ekki að trúa okkar eigin augum. Verð á ferðinni lækkaði á augabragði um tugþúsundir og það sem bókunarvélin sagði vera allra ódýrustu fargjöld reynast nú vera margfalt lægri. Flug út 1. febrúar kostar 129.915 krónur ef heimkoma er þann 17. febrúar en komist fólk heim einum sólarhring síðar fæst flugið út á 39.945 krónur. Lækkunin nemur 233%.

Án þess að vita fyrir víst ástæðu þessa fer þetta hættulega nálægt því að vera vörusvik. Að lista 129.915 krónur sem lægsta verð á flugi sem svo fyrir hreina tilviljun reynist í boði 233 prósentum ódýrara er langt undir belti hjá stóru flugfélagi. Ef það varðar ekki beinlínis við lög.

Allavega virðist vera full ástæða til að GEFA SÉR EKKI að blái liturinn sé í raun lægsta verð eins og Icelandair lofar. Ef einhverjir þarna úti hafa lent í svipuðu viljum við gjarnan heyra af því.