Þegar ekki fæst skítleg kompa á íslensku hóteli yfir annatíma undir 25 þúsund krónum og greiða þarf töluvert hærra verð fyrir venjuleg herbergi á betri hótelum er auðvelt að gleyma að hvergi er samkeppni í hótelbransanum minni en á farsæla Fróni. Dálítið annað upp á teningnum í Mexíkó.
Þó finna megi æði margt miður við fjöldatúrismastaði þá hafa þeir allir þann kost að gríðarleg samkeppni heldur verði á þjónustu, gistingu og annarri afþreyingu fyrir ferðafólk mjög niðri. Úrvalið er einfaldlega það mikið að þeir ferðamenn sem ekki hafa milljarða milli handanna versla einfaldlega við þá sem best bjóða hverju sinni. Og þeir hafa flestir tíma til að skokka á milli staða.
Við hjá Fararheill vorum minnt á þetta þegar við rákumst á eitt tilboð Hotwire hótelleitarvélarinnar en þar er reyndar um 4.5 stjörnu hótel í Chihuahua fylkinu að ræða. Kemur í ljós að í Mexíkó eru hótel ekki aðeins fjögurra eða fimm stjörnu heldur líka 4.5 stjörnu.
Mega menn leita um alla eilífð eða því sem næst áður en á Norðurlöndum öllum finnst lúxusgisting á góðum tíma niður í sex þúsund krónur per nótt miðað við gengi dagsins. Og er þó íslenska krónan ekki hátt skrifuð í alþjóðlegum samanburði.
Það sannast aftur og aftur og aftur að þolinmóð leit heima við eldhúsborðið með tölvuna að vopni getur margborgað sig sé fólk á annað borð að skipuleggja eigin ferðalög. Peningana sem annars færu í milliliði, ferðaskrifstofur, gistingu eða slíkt má þá nota í mann sjálfan, lyfta sér upp og njóta.








