Við vitum ekki um ykkur en í okkar huga er ekki margt leiðinlegra en október ef frá eru skildir janúar og febrúar. Dagarnir dimmir og kaldir sem aftur hefur áhrif á sálarlíf eyjaskeggja hér í ballarhafi. En það er til ráð við því.
Skemmtiferðafyrirtækið Celebrity Cruises hefur fyrir nokkru kynnt haust- og vetrarferðir sínar og þar kennir nokkurra grasa. Grasa sem hægt er að njóta á sérlega vægu verði grípi menn gæs snöggt og örugglega.
Það á sannarlega við um fjórtán nátta siglingu í októbermánuði með Celebrity Infinity sem eins og önnur skip þessa fyrirtækis er troðið af freistingum.
Á vef Celebrity má nú finna siglingu frá Harwich í Englandi þann 13. október í ferð sem liggur fyrst til Lissabon í Portúgal áður en haldið er þvert yfir Atlantshafið þar sem stoppað verður bæði á Bermúda og Bahamas áður en ferð endar í Fort Lauderdale í Bandaríkjunum.
Auðvitað eru engar flugferðir innifaldar í tilboði Celebrity en góðu heilli getum við komist ódýrt til Englands og með góðum fyrirvara sæmilega ódýrt til Orlando. Auðvitað kostar það allt en þá hjálpar sennilega að siglingin sjálf í innri klefa fæst nú á aðeins 76 þúsund krónur á mann miðað við tvo. Kjósi fólk að fá íburðarmeiri káetu og það með svölum til að njóta hafgolunnar saman á kvöldin yfir dýrri hvítvín kostar það manninn samt aðeins 138 þúsund krónur. Samtals siglingin með svölum tæpar 280 þúsund krónur. Sem er brandari!
Nú er bara að hefja leit að flugi sem stemmir við siglinguna og hver veit nema október sé lukkumánuður einhverra þarna úti.








