Efist lesendur um að til æðstu valda í ríkjum heimsins kemst oft á tíðum fólk sem er helsteikt í hausnum gæti verið óvitlaust að lesa skýringar fyrrum forsætisráðherra Malasíu á hvarfi MH 370 þotu Malaysian Airlines sem enn er leitað á Indlandshafi.

Það er það orðið ljóst...

Þá er það orðið ljóst…

Karlinn atarna, Mahathir Bin Mohamad, er með skýringar á reiðum höndum um hvað olli því að þotan fórst með öllum innanborðs í síðasta mánuði. Það er auðvitað framleiðanda vélarinnar, Boeing, um að kenna.

Lesa má þruglið í karlinum í heild á bloggi hans á vef Malay Online en hann segir alls ekki flugmönnum um að kenna. Alls ekki slælegu öryggi á flugvellinum heldur. Nei, aðeins Boeing geti svarað því hvers vegna vél sem þeir framleiddu hagaði sér öðruvísi en við var búist í flugi.

„Boeing must accept responsibility for building an aircraft that can disappear in mid-air so completely. MAS is not at fault, lax security or not. MAS flew a plane fully expecting it to perform the task. But the plane has somehow behaved differently. Who is responsible? Not MAS but certainly the makers of the plane — Boeing Aircraft Corporation. — chedet.cc“