Áður höfum við hjá Fararheill grátið það hversu lítið framboð er af ferðum héðan til Króatíu. Fyrir utan einstöku „sérferðir“ er ekkert í boði þangað sem vekur athygli þegar haft er í huga að samkvæmt árslistum Google leita fleiri Norðmenn og Svíar að ferðatilboðum þangað en annað. 

Hvernig væri að prófa eitthvað nýtt næstu mánuðina...

Hvernig væri að prófa eitthvað nýtt næstu mánuðina…

Það kemur ekki á óvart fyrir þeim er heimsótt hafa þennan hluta Balkanskagans. Hér er landslag sem er mikils virði, strendur sem standast fyllilega allan samanburð, minjar margar sem eru með þeim heillegustu í veröldinni og verðlag er hér enn nokkuð undir því sem gerist á vinsælli stöðum.

Við verðum því að fara krókaleiðir til að njóta sólar í Króatíu og við rákumst á eitt æði safaríkt tilboð þangað í apríl og maí með bresku ferðaskrifstofunni Broadway Travel.

Þar er vikuferð í boði á glænýju fjögurra stjörnu hóteli við hina fornu og fallegu hafnarborg Dubrovnik. Hálft fæði er innifalið, ferðir til og frá flugvelli, kampavín við komu og algjörlega frítt í heilsulind hótelsins meðan á dvölinni stendur. Aldeilis dágott í alla staði. Enn betra að verðið er aðeins 63 þúsund krónur á mann miðað við tvo saman en það á við frá Gatwick. Þangað þarf jú að komast og má gera ráð fyrir 40 þúsund krónum aukalega að minnsta kosti á mann.

Alls fer vikuferðin því í hundrað þúsund krónur sem er engu að síður lágt miðað við það sem gerist og gengur og sannarlega lágt fyrir nýjan og pínulítið framandi stað.

Allt um málið hér.