Þú mátt leita til eilífðarnóns hér innanlands. Engin ferðaskrifstofa býður ljúfa tveggja vikna ferð með öllu inniföldu til Marmaris í Tyrklandi fyrir réttar 80 þúsund krónur á manninn.

Marmaris um páskana einhver....

Marmaris um páskana einhver….

Það gerir hins vegar breska ferðaskrifstofan Globetrotter sem hefur skorið 30 prósent af verði á þessum ferðum sínum til Marmaris. Ofangreint verð á við um ferðir frá London í næsta mánuði yfir páskahátíðina. Einmitt á sama tíma og allt er uppselt hér heima. Sama verð gildir líka í túra með haustinu en ferðir þess á milli aðeins dýrari.

80 þúsund króna pakkinn á við um fjórtán daga túra á góðu fimm stjörnu hóteli og ólíkt því sem gerist hérlendis er fólki komið alla leið á hótelið og út á flugvöll aftur. Það kostar engan fimm þúsund kall aukalega eins og venjan er hjá íslenskum ferðaskrifstofum heldur innifalið í verðinu. Annað sem kemur tyrkneskt fyrir sjónir kannski er að verð miðast við tvo saman en ekki hjón með tvö börn yngri en tólf ára.

Allt saman plúsar en mínusinn sá að fólk þarf að koma sér til Bretlands og frá Bretlandi að ferð lokinni. Miðað við 40 þúsund króna kostnað við það kostar þessi ferð manninn því um 120 þúsund krónur og er ennþá langt undir því verði sem okkur er boðið upp á hér á landi.

Allt um tilboðið hér.