Það er sannarlega hægt að öfunda alla þá sem virðast aldrei nokkurn tíma hafa ama af moskítóflugum á ferðum í heitari löndum heims. Þeir spássera vandræðalaus um og glotta jafnvel góðlátlega að hinum sem eiga fullt í fangi með að fá ekki bit númer sjö þúsund þann daginn.

Í ljós kemur að við höfum mismunandi tegundir örvera á húð okkar.

Í ljós kemur að við höfum mismunandi tegundir örvera á húð okkar.

Það hefur aldrei legið ljóst fyrir hvers vegna sú plága sem moskítóflugur eru virðast aðeins leggjast á suma. Gegnum tíðina hafa ýmsar tilgátur komið fram en sjaldan ítarlegar rannsóknir legið þar að baki.

En nú loks er það að breytast. Staðfest hefur verið að þó við deilum 99.9 prósent sama erfðaefnis, DNA, þá deilum við aðeins um tíu prósent þeirra örvera sem lifa á húð okkar. Með öðrum orðum; fá okkar hafa sama magn eða tegundir örvera sem lifa í okkur og á okkur. Og þar liggur hundurinn grafinn þegar kemur að mismunandi aðdráttarafli gagnvart moskítóflugum.

Samkvæmt rannsókn örverufræðinga hvers niðurstöður eru birtar hér kemur í ljós að það er sannarlega til fólk með þannig örverusamsetningu á húð sinni að moskító lítur ekki við þeim. Af 50 manna markhópi í rannsókninni reyndust 9 þeirra trekkja að moskító eins og mykjuskán trekkir mý meðan ilmur sjö annarra þátttakenda heillaði moskítóflugurnar lítið sem ekkert. Munurinn fólst í því magni efna sem örverurnar á húð viðkomandi gáfu frá sér.

Það er því ekki til nein töfralausn gegn þessari plágu en aðrar rannsóknir hafa sýnt mjög takmarkaða virkni eiturefna og smyrsla sem margir bera á sig til að koma í veg fyrir bit. Lausnin felst kannski helst í að halda sig á Íslandinu góða sem er eitt af fáum löndum heims þar sem þessar leiðindaflugur hafa enn ekki náð sér á strik.